12.2 Hvernig minnka má áhættuna
Leiðir til að minnka hættu á að skuggaefni fari út fyrir æð:
- Setja upp nýjan venulegg ef grunur er um að sá leggur sem sjúklingur er með virki ekki sem skyldi, t.d.:
- Ekki af passandi stærð
- Ekki á réttum stað
- Tregt að sprauta í legginn.
- Gæta þess að venuleggurinn passi æðinni og þeim inndælingarhraða sem nota á.
- Setja venulegginn í eins víða bláæð og mögulegt er
- Helst í olnbogabót
- Vakta skuggaefnisinndælinguna með þreifingu á venunni ofan við inndælingarstaðinn (proximalt)
Athugasemd:
Skuggaefni sem eru isoton við blóðvökvann geta minnkað hættu á vefjaskaða
Alvarleg merki um skuggaefnisleka:
- Versnandi verkir eða roði
- Bjúgur
- Minnkað blóðflæði í vefjum
- Minnkuð skynjun
- Blöðrur myndast
Þessar aukaverkanir geta komið fram allt að sólahring eftir skuggaefnisgjöf og því er mikilvægt að hvetja sjúkling til að láta vita til myndgreiningardeildar ef þessi einkenni koma fram.